20.50.41 Námsumhverfi og netkennsla

ECTS: 6 einingar
Kennslumisseri: Vor
Markmið: Nemendur - átti sig á möguleikum sem felast í dreifðum og sveigjanlegum kennsluháttum, jafnt í bekkjarstarfi, innan skóla og í samvinnu á milli skóla eða skólastiga - kynnist og nái tökum á margs konar búnaði og aðferðum sem lúta að hljóð- og myndsendingum, kennslu og námsverkefnum á neti, samhæfingu og flæði gagna og tæknilausna, samskiptum og samvinnu um verkefni - móti hugmyndir um náms- og vinnuumhverfi þar sem slíkum lausnum er beitt Viðfangsefni: Á námskeiðinu verður athygli beint að sveigjanlegu námsumhverfi þar sem byggt er á eða stuðst við upplýsingatækni. Nemendur kynnast ýmsum búnaði sem notaður er í fjarkennslu og fjarnámi, netnámi í tengslum við staðnám, verkefnastjórn og samvinnu. Athygli er beint að samhæfingu og flæði gagna og tæknilausna. Áhersla verður lögð á að nemendur verði færir um að skipuleggja að einhverju marki námsumhverfi þar sem tækni af þessum toga er beitt, fái sem gleggsta mynd af þeirri tækni sem á boðstólum er og öðlist sem bestan skilning á þeim möguleikum sem felast í dreifðum og sveigjanlegum náms- og kennsluháttum með tilliti til uppeldis og skólastarfs.
Umsjónarkennari: Jón Jónasson